Fjöldi fyrirtækja leggja vaxandi áherslu á leiki á borð við Paintball sem er spennandi kostur og nýstárleg leið til að byggja upp liðsheild og efla liðsanda starfsmanna. Í Paintball hafa þáttakendur um marga og oft á tíðum óvænta kosti að velja. Menn geta til að mynda ákveðið að hörfa og skilja þar með félaga sína eftir berskjaldaða, orðið viðskila í hita leiksins og skotið á eigin liðsmenn í ógáti ..... úúúúps!!